Veitingastaðir
Seyðisfjörður er lítið þorp, en þó er fjölbreytt flóra veitinga í boði yfir sumartímann.

Aldan
Á veitingastað Hótel Öldunnar er íslenskt hráefni í hávegum haft. Matseldin er undir evrópskum og norrænum áhrifum og úrval drykkja sérvalið. Í sumar er boðið upp á girnilega smárétti sem tilvalið er að deila í góðum félagsskap.

Norð Austur - Sushi&Bar
Á Norð-Austur er íslenskur fiskur framreiddur eftir japanskri hefð. Auk dásamlegra maki-rúlla og nigiri-kodda er boðið upp á japanska smárétti og ljúffenga kokteila. Staðurinn hefur tvívegis verið valinn einn besti veitingastaður landsins af White Guide.

Skaftfell Bistro
Veitingastaður Skaftfells er hannaður undir áhrifum myndlistarmannsins Dieter Roth. Á meðan beðið er eftir matnum má lita, spila og glugga í bækur. Þó staðurinn sé þekktastur fyrir sínar frábæru pizzur eru líka fisk-, kjöt- og grænmetisréttir á boðstólnum.

Sirkus
Hinn frægi Sirkus sem stóð við Klapparstíg í rúman áratug var enduropnaður á Seyðisfirði vorið 2019. Áherslan er sú sama og áður: litrík stemning, skemmtilegt fólk og góður bjór.

Láran
Café Lára er fyrir löngu orðin stofnun í veitingalífi Seyðfirðinga. Hér eru borgarar og grill allt sumarið og boðið upp á Seyðfirska bjórinn El Grillo. Sýndir eru fótboltaleikir á stórum skjá.